Gunnar Smári Helgason fæddist á Hvammstanga í Vestur-Húnavatnssýslu, 20. júlí 1957 og ólst þar upp.

Foreldrar Gunnars eru Helgi S. Ólafsson rafvirkjameistari og organisti, og Dóra Eðvaldsdóttir kona hans.

G. hóf nám í hljóð-upptökum haustið 1978 í Hljóðrita í Hafnarfirði, helstu kennarar voru Tony Cook og Jónas R. Jónsson.

Gunnari sóttist námið vel, fór fljótt að vinna sem fullgildur upptökumaður og starfaði sem yfir-upptökumaður Hljóðrita um nokkurt skeið, en lengst af hefur G unnið sjálfstætt (free-lance).

Ekki er til nákvæm tala yfir þær plötur sem Gunnar hefur unnið við, en þær eru orðnar a.m.k. 600 talsins.

Gunnar hefur einnig starfað við hljóð-upptökur og/eða eftirvinnslu í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum, talsetningu á teiknimyndym, hljóðvinnslu á auglýsingum, hljóðblöndun í leikhúsum og á tónleikum bæði klassískum og popptónleikum.

Má þar nefna:
Kvikmyndirnar: Okkar á milli, Með allt á hreinu, Hrafninn flýgur, Í skugga hrafnsins, Reykjavík 200 ára, Gullsandur, Eins og skepnan deyr, Bödeln og Skökan (Sænska sjónvarpið), Hin helgu vé, Skýjahöllin.
Talsetningar: Fuglastríðið, Tommi og Jenni (mála bæinn rauðan), Prinsessan og durtarnir, o.fl.
Sjónvarpsþættina: Á tali hjá Hemma Gunn, Eurovision forkeppnir í nokkur ár, (auk þess að fara þrisvar sinnum utan, sem hljóð-ráðgjafi, með keppendum Íslands, m.a. til Zagreb þegar við lentum í 4. sæti ...), Óskastund, Þegar það gerist, Reykjavík í öðru ljósi.
Söngleikir: Gæjar og Píur (Þjóðleikhúsið), Litla Hryllingsbúðin (Gamla Bíó), Blóðbræður og Á Köldum Klaka (Borgarleikhúsið)

Allt of langt mál yrði að telja upp þær hljómplötur sem G hefur starfað við, en eins og áður segir, eru þær að minnsta kosti 600, og hefur G unnið með mörgum landsþekktum listamönnum.  Þá eru ótaldar þær kvikmyndir sem G hefur tekið upp tónlist fyrir.

Gunnar sá um hljóð á Arnarhóli á 200 ára afmæli Reykjavíkur 1986 og einnig á Kristnihátíð á Þingvöllum árið 2000.

Einnig ber að nefna hljóðblöndun á öllum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Laugardalshöll í seinni tíð, þ.á.m. Vínartónleikar, José Carreras, Baldur (Jón Leifs), Kristján Jóhannsson o.fl.

G var fastur starfsmaður í Studio Sýrlandi á árunum 1991 og 1992, var ríkis-starfsmaður hjá Þjóðleikhúsinu í 50 daga og 50 nætur í árslok 1994, en hætti vegna lágra launa þar. (64.000 á mánuði !!)

Árið 1995 var G ráðinn tæknistjóri Bylgjunnar, og sem hljóðmeistari Íslenska Útvarpsfélagsins á árunum 1996 til 1998, en þá setti G upp eigið hljóðver í Hafnarfirði og var Hljóðsmárinn ehf formlega stofnaður í árslok 1999 og starfaði G þar fram á vordaga 2002.

Starfsemin í Hafnarfirði hefur verið lögð niður, og starfaði Hljóðsmárinn ehf um skeið í tengslum við Lindina sem er kristilegt útvarp, og framleiðir kristilegt efni fyrir sjónvarp, útvarp og til útgáfu.

Í árslok 1997 fór G. að íhuga trúmál meira en áður, og gekk til liðs við Hvítasunnuhreyfinguna skömmu seinna, með því að taka niðurdýfingarskírn í Fíladelfíu 8. mars 1998, en hafði fram að því verið í Þjóðkirkjunni.

G stóð m.a. fyrir því að samkomur Fíladelfíu eru vistaðar á Internetinu, og var í hópi þeirra manna sem komu á beinum útsendingum frá Fíladelfíu á Lindinni FM102.9 alla sunnudaga.

Í júní 2002 var G. ráðinn í hlutastarf sem kennari við Tónlistarskóla FÍH, og sem umsjónarmaður Hljóðvers FÍH.